Ný íþróttamiðstöð vígð á Dalvík.
Laugardaginn 2. október, var ný íþróttamiðstöð vígð og tekin í notkun á Dalvík.
Hönnuður hússins er Fanney Hauksdóttir, arkitekt og aðalverktaki var Tréverk hf. á Dalvík.
Í byggingunni, sem er 2000m² á tveimur hæðum, er löglegur keppnisvöllur fyrir handbolta og áhorfendapallar rúma 300 manns. Á efri hæð er afgreiðsla og þreksalur þar sem bæði er útsýni yfir sundlaug og inní íþróttasal.