Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum í að byggja þjónustuhús við Oddeyrarbryggju, Akureyri. Verktaki skal framkvæma jarðvinnu, steypa upp grunn, reisa hús, innrétta, ganga frá utan húss sem innan og fullgera húsið samkvæmt útboðsgögnum. Verkið nær til endurbóta á þeim hluta af lóðinni sem er næst byggingunni ásamt breytingum á girðingu.
Innréttingar og laus búnaður er ekki innifalinn í verkinu.
Helstu stærðir: Hús 163,2 m2 536,7 m3
Lóð 384,0 m2
Útboðsgögn verða afhent hjá AVH ehf arkitektúr-verkfræði-hönnun, Kaupangi, Mýrarvegi, Akureyri frá og með föstudeginum 9.október 2009.
Útboðsgögn eru á geisladiski og kosta kr. 5.000.-.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hafnasamlags Norðurlands föstudaginn 23.október 2009 kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.