Skóflustunga að nýrri frystigeymslu HB Granda.
Í dag, föstudag 23. nóvember, var tekin fyrsta skóflustunga að nýrri frystigeymslu fyrir HB-Granda á athafnasvæði fyrirtækisins á Grandagarði í Reykjavík. Það var Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda sem tók skóflustunguna að viðstöddu fjölmenni. Heildarstærð hússins er um 3.800m². AVH ehf eru hönnuðir frystigeymslunnar og aðalhönnuður er Anna Margrét Hauksdóttir arkitekt. Áætlað er að húsið verði tekið í notkun í lok maí 2013. Aðalverktaki er IAV hf.