Kaupangi v/Mýrarveg, 600 Akureyri / Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík
+354 460 4400 / +354 561 4400
8:00-17:00
IMG_4105-light

Ný frystigeymsla fyrir HB Granda

Skóflustunga að nýrri frystigeymslu HB Granda.

 

Í dag, föstudag 23. nóvember, var tekin fyrsta skóflustunga að nýrri frystigeymslu fyrir HB-Granda á athafnasvæði fyrirtækisins á Grandagarði í Reykjavík. Það var Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda sem tók skóflustunguna að viðstöddu fjölmenni. Heildarstærð hússins er um 3.800m².  AVH ehf eru hönnuðir frystigeymslunnar og aðalhönnuður er Anna Margrét Hauksdóttir arkitekt.  Áætlað er að húsið verði tekið í notkun í lok maí 2013. Aðalverktaki er IAV hf.