Á Sjómannadaginn sunnudaginn 2. júní var ný frystigeymsla HB Granda vígð við hátíðlega athöfn að loknu ávarpi Forseta Íslands.
Við þetta tilefni var húsinu gefið nafnið Ísbjörninn. AVH ehf eru hönnuðir frystigeymslunnar og aðalhönnuður er Anna Margrét Hauksdóttir arkitekt.
Nýja húsið er alls 3.800 fermetrar, þar af er frystigeymslan 2.600 fermetrar að grunnfleti og getur hýst allt að 6.000 tonn af frystum afurðum.
AVH ehf óskar HB Granda innilega til hamingju með þetta fallega hús sem nú er risið aðeins 6 mánuðum eftir að fyrsta skóflustungan var tekin á Norðurgarði í Reykjavík.