-
Samstarf milli RML og AVH
Í fyrra var skrifað undir samstarfssamning milli Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins (RML) og AVH til að aðstoða bændur í nýbyggingum og breytingum á núverandi mannvirkjum. Á myndinni eru Runólfur Sigursveinsson og Anton Örn Brynjarsson að handsala samstarfssamning AVH og RML. Frá því að RML var stofnað 2013 hefur bútækniráðgjöf til bænda verið takmörkunum háð varðandi skil á teikningum til…
-
Fjölnotasalur við Menntaskólann á Tröllaskaga
Síðast liðið haust var hátíðleg athöfn vegna opnunar nýs fjölnotasalar í viðbyggingu við Menntaskólann á Tröllaskaga. Fanney Hauksdóttir hannaði viðbygginguna. AVH sá um arkitekta-, burðaþols- og lagnahönnun en Raftákn hannaði raflagnir. Notast var við BIM tækni (e. Building Information Modeling), eða upplýsingamódel mannvirkja.
-
Skóflustunga við Unnargrund 2
Fimmtudaginn 2. nóvember var fyrsta skóflustungan tekin að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Unnargrund í Garðabæ. Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar, Sturla Þorsteinsson, formaður fjölskylduráðs Garðabæjar, Guðrún Þórðardóttir, formaður Áss styrktarfélags, og Haraldur Viggó Ólafsson, fulltrúi í notendaráði Áss styrktarfélags, tóku fyrstu skóflustunguna. Um er að ræða búsetukjarna með sex íbúðum fyrir fatlað fólk ásamt…
-
Viðurkenning fyrir hjúkrunarheimili á Selfossi
AVH tók þátt í opinni hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í sveitarfélaginu Árborg. 17 tillögur bárust í samkeppnina frá íslenskum og erlendum arkitektastofum. AVH hlaut viðurkenningu fyrir áhugaverða tillögu og dómnefndarálit má sjá á pdf skjali. Anna Margrét Hauksdóttir, Arnþór Tryggvason og Pétur Jónsson töku á móti viðkenningunni á síðastliðnum þriðjudegi á Selfossi.
-
Sundlaug Dalvíkur opnar aftur eftir endurbætur
Sundlaug Dalvíkur var opnuð aftur 1. ágúst, eftir gagngerar endurbætur. Fanney Hauksdóttir hannaði sundlaugina og íþróttahúsið á sínum tíma. AVH sá um endurbæturnar.
-
Falleg íslensk heimili
Í síðasta mánuði var einbýlishús við Krókeyrarnöf tekið fyrir í þættinum “Falleg íslensk heimili” og kom á Vísi.is 19. maí “Í glæsilegu húsi við Krókeyranöf á Akureyri býr María Bergþórsdóttir og fjölskylda. Hjónin byrjuðu að byggja húsið árið 2009 og fluttu síðan inn tveimur árum síðar. Arkitektinn Fanney Hauksdóttir teiknaði húsið.Húsið er tæplega þrjú hundruð…
-
Byggingarlistarverðlaun Akureyrar
Á vorkomu Akureyrarstofu voru veitt byggingarlistarverðlaun og hlaut Fanney Hauksdóttir arkitekt þau fyrir hönnun sína á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð. Einnig var tilkynnt um bæjarlistarmann Akureyrar, veitt viðurkenning úr Húsverndunarsjóði og veitt heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs. Frétt um vorkomuna má sjá á akureyri.is/. Í fréttinni er talað um „hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð sem þykir hafa heppnast afar vel með tilliti til…
-
Hótel við Hafnarstræti 80
Fréttatilkynning frá KEA: „KEA fjárfestingarfélag hefur tekið ákvörðun um að hefja byggingu hótels við Hafnarstræti 80 á Akureyri eða á svokallaðri Umferðarmiðstöðvarlóð. KEA keypti lóðina fyrir um tveimur árum en síðan þá hefur verið unnið að breytingum á skipulagi lóðarinnar svo af byggingu hótels geti orðið. Til stendur að reisa þar 150 herbergja hótel en…
-
Skýrsla um þéttingu byggðar á Akureyri
AVH hlaut rannsóknarstyrk á síðasta ári til að vinna að skýrslu um þéttingu byggðar á Akureyri, með sjálfbærni að leiðarljósi. Skýrslan kom út síðast liðinn janúar á vef Skipulagsstofnunnar, en hér má sjá frétt um það og nálgast skýrsluna á pdf formi.
-
Samkeppni um aðstöðuhús siglingaklúbbsins Nökkva
AVH sigraði í lokaðri hönnunarsamkeppni um aðstöðuhús fyrir siglingaklúbbinn Nökkva á Akureyri. Markmiðið var að hanna bátaskýli, þjónustubyggingu og nánasta umhverfi. Hér má sjá útlitsmyndir af forhönnun byggingarinnar.
-
Starfsmannaferð til Helsinki
Farin var starfsmannaferð með mökum til Helsinki í Finnlandi dagana 13.-16. október. Það var ýmislegt skoðað, meðal annars Dómkirkjan, bókasöfn, aðal lestarstöðin, Kiasma safnið, Finlandia Hall, steinakirkjan og Kamppi kapellan. Það sem stóð upp úr var skoðunarferð um skrifstofu Alvar Aalto ásamt húsinu hans. Auðvitað var farið í sauna og það á nýjum stað sem heitir…
-
Skóflustunga að viðbyggingu við Menntaskólann á Tröllaskaga
2. september síðastliðinn tók Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra fyrstu skóflustunguna að viðbyggingu Menntaskólans á Tröllaskaga í Ólafsfirði. Byggingin verður ríflega 200 m² og mun þar meðal annars verða matar-, félags- og fundaraðstaða. Áætlað er að framvæmdum ljúki í ágúst 2017 og mun hún bæta verulega alla aðstöðu nemenda. (Tekið af vef Fjallabyggðar 8.sept: http://www.fjallabyggd.is/is/frettir-og-tilkynningar/skoflustunga-tekin-nyrri-vidbyggingu-vid-menntaskolann-a-trollaskaga-i-olafsfirdi) AVH sá…