FRÉTTIR
-
Kirkjutröppurnar
Nú er í gangi auglýsing tillögu að deiliskipulagsbreytingu á vinnslustigi. Breytingarnar eru eftirfarandi:
-
Heilsugæslan opnar í sunnuhlíð
Mikil ánægja var með nýju heilsugæsluna í Sunnuhlíð 12 á Akureyri, samkvæmt frétt á Akureyri.net (https://www.akureyri.net/is/flokkur/heilsugaeslan/mikil-anaegja-med-nyju-heilsugaesluna). AVH sá um arkitektahönnun og samhæfingarvinnu. Myndir hér að neðan fegnar að láni frá Akureyri.net, ásamt renderingum frá okkur. Fleiri myndir frá heilsugæslunni: https://www.akureyri.net/is/flokkur/heilsugaeslan/heilsugaesla-her-og-onnur-thar-myndir
-
Opnun búsetukjarna við Brekkuás 2 í Garðabæ
Á mánudaginn 6. nóvember 2023, var búsetukjarninn við Brekkuás 2 formlega opnaður við hátíðlega vígsluathöfn.
-
AVH styrkti björgunarsveitina Súlur
AVH styrkti björgunarsveitina Súlur og keypti Neyðarkallinn 2020.
-
Kynning á deiliskipulags tillögu – Holtahverfi norður
Á mánudaginn síðast liðinn var opið hús í Hofi á Akureyri þar sem tillaga að deiliskipulagi fyrir Holtahverfi norður var kynnt. Markmiðið með nýju deiliskipulagi er að bjóða upp á nýjar lóðir í bæði gömlu og nýju hverfi á einu fallegasta svæði Akureyrar. Svæðið býður upp á útsýni til allra átta og er til dæmis…
-
Nýtt aðstöðuhús Nökkva við Drottningarbraut
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum uppsetningu nýs aðstöðuhúss fyrir siglingaklúbbinn Nökkva. Húsið verður staðsett á fyllingu við núverandi svæði Nökkva við Drottningarbraut. Um er að ræða tæplega 403 m² CLT einingarhús teiknað og hannað af AVH ehf. Kynningarfundur og vettvangsskoðun verður kl. 13.00 þann 26. júní 2020 og er skráning á tölvupóstfangið umsarekstur@akureyri.is Framkvæmdir…
-
Byggingalistaverðlaun Akureyrar 2020
Byggingalistaverðlaun Akureyrar 2020 hlaut Anna Margrét Hauksdóttir arkitekt FAÍ, AVH ehf. og Bergfesta byggingarfélag fyrir útfærslu fjölbýlishúsa við Halldóruhaga 8, 10, 12 og 14. Húsagerðin er tveggja hæða fjórbýlishús með útitröppum. Húsunum er skipt upp í tvíbýliseiningar, tveim og tveim saman með opnum stigum á milli. Útistigar njóta skjóls undir þaki og á bak við…
-
Raðhús úr krosslímdu timbri (CLT)
Byggingu raðhúss úr krosslímdu timbri (e: CLT, cross-laminated timber) við Geirþrúðarhaga 3 á Akureyri gengur vel. Sigurgeir Svavarsson ehf. byggir húsið en AVH ehf sá um alhliða hönnun fyrir utan rafmagn. Eins og fyrr segir er húsið úr krosslímdum timbur einingum frá Austurríki og er eitt af fyrstu húsunum á Akureyri sem byggt er með…
-
Starfsmannaferð til Toronto
Í oktober stóð starfmannafélag AVH fyrir skemmti- og menningarferð til Toronto í Kanada. Hópurinn fór meðal annars saman á íshokkí safn (The Hockey Hall of Fame) og leik með Toronto Maple leafs. Einnig var farið í dagsferð til Niagara fossanna og komið við í vínsmökkun á leiðinni. Ýmislegt annað var gert eins og gengur og…
-
Opnun Glerárvirkjun II
Glerárvirkjun II var formlega gangsett á föstudaginn. „Virkjunin getur séð fimm þúsund heimilum á Akureyri fyrir rafmagni og um leið fjölgar útivistarmöguleikum í Glerárdal.“ (frétt af ruv.is) Myndirnar eru úr fréttum frá akureyri.is og vísir.is AVH sá um alhliðahönnun á stöðvarhúsinu.
-
Samstarf milli RML og AVH
Í fyrra var skrifað undir samstarfssamning milli Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins (RML) og AVH til að aðstoða bændur í nýbyggingum og breytingum á núverandi mannvirkjum. Á myndinni eru Runólfur Sigursveinsson og Anton Örn Brynjarsson að handsala samstarfssamning AVH og RML. Frá því að RML var stofnað 2013 hefur bútækniráðgjöf til bænda verið takmörkunum háð varðandi skil á teikningum til…
-
Fjölnotasalur við Menntaskólann á Tröllaskaga
Síðast liðið haust var hátíðleg athöfn vegna opnunar nýs fjölnotasalar í viðbyggingu við Menntaskólann á Tröllaskaga. Fanney Hauksdóttir hannaði viðbygginguna. AVH sá um arkitekta-, burðaþols- og lagnahönnun en Raftákn hannaði raflagnir. Notast var við BIM tækni (e. Building Information Modeling), eða upplýsingamódel mannvirkja.